Með þingmann í maganum?

Kjörstjórn Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir framboðum.
Kjörstjórn Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir framboðum.

„Ertu með þingmann í maganum? Auglýst er eftir framboðum í flokksval Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Frambjóðendur í flokksvalinu geta þeir verið sem eru félagar í Samfylkingunni og hafa kjörgengi í kjördæminu,“ segir í tilkynningu frá kjörstjórn Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Framboðsfestur er til miðnættis 19. ágúst 2016. Flokksvalið verður haldið dagana 8. - 10. september Framboðum ásamt meðmælalista skal skila til formanns kjörstjórnar Geir Guðjónssonar sem gefur nánari upplýsingar í síma 698 10 36.

Fleiri fréttir