Meðalaldurinn á einni stofunni á HSN á Blönduósi er rúm hundrað ár

María (t.v.) og Sigrún eru samtals rúmlega 201 árs. Mynd: AGS
María (t.v.) og Sigrún eru samtals rúmlega 201 árs. Mynd: AGS

Það má segja að meðalaldurinn í einu herberginu á sjúkradeild HSN á Blönduósi sé býsna hár. Þar búa tvær konur sem samanlagt eiga rúmlega 201 aldursár að baki. Sigrún Hjálmarsdóttir er fædd í september árið 1915 og María Magnúsdóttir í október árið 1916. Þær hafa báðar fótavist - eru ótrúlega ernar eins og gjarnan er sagt. Blaðamaður Feykis heimsótti Maríu og Sigrúnu síðast liðinn föstudag og fékk þær til að rifja upp nærri aldar gamlar minningar.

María og Sigrún þekktust lítið áður en þær komu á HSN þar sem þær deila herbergi. Sigrún segir samkomulagið þó gott. „Þó að ég yrði reið og færi að skammast, þá heyrði hún það ekkert,“ segir Sigrún og hlær. Spjallað er við þær Maríu og Sigrúnu í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag.

Fleiri fréttir