Meðhöndlun matvæla í eldhúsinu um jólin
Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.
Á vef Matvælastofnunar er vakin athygli á því að sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu.
Á mast.is segir að hafa skal í huga að:
• Hrátt kjöt og safi úr því skal ekki komast í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
• Þvoum ávexti og grænmeti til að varna því að bakteríur af því berist í matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
• Þvoum hendur áður en hafist er handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti
• Þrífum skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun eða notum sérstök skurðarbretti fyrir kjöt, grænmeti og tilbúin matvæli
• Skipuleggjum ískápinn vel og höldum honum hreinum til að varna því að krossmengun verði þar
• Skiptum reglulega um borðtuskur, viskastykki og handþurrkur.
Bakteríur fjölga sér mjög hratt við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein baktería fjölgað sér í 1000 á 3 tímum og í 1 milljón á 6 tímum. Það er því mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við það hitastig að komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería með því að takmarka þann tíma sem viðkvæm matvæli, s.s. reyktur og grafinn fiskur og álegg er á borðum við stofuhita. Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C. Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C) takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum.
Landsmenn eru hvattir til að tileinka sér hreinlæti, rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli jólagleðinni.
Ítarefni
HÉR er hægt að nálgast upplýsingasíðu Matvælastofnunar um meðhöndlun matvæla og hreinlæti.
Á YouTube er hægt að nálgast ágætis myndband um krossmengun og hvernig er hægt að forðast hana.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.