Meistaramót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi

Sigurvegarar mótsins. Eyþór, Birna og Hafsteinn. Mynd: huni.is
Sigurvegarar mótsins. Eyþór, Birna og Hafsteinn. Mynd: huni.is

Golfklúbburinn Ós Blönduósi hélt meistaramót sitt dagana 3. og 4. júlí á Vatnahverfisvelli í ágætis veðri. Sagt er frá mótinu inni á huni.is. Sigurvegari í meistaraflokki karla á 170 höggum var Eyþór Franzon Wechner, í öðru sæti á 175 höggum var Jón Jóhannsson og Valgeir M. Valgeirsson í þriðja sæti á 186 höggum. Birna Sigfúsdóttir sigraði í meistaraflokki kvenna á 205 höggum og í öðru sæti var Jóhanna G. Jónasdóttir á 230 höggum.

Hafsteinn Pétursson sigraði svo í fyrsta flokki karla með 201 högg, Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson lenti í öðru sæti með 205 högg og í þriðja sæti varð Helgi Haraldsson með 220 högg.

 Mótsúrslit:

Meistaraflokkur karla.
1.sæti  Eyþór Franzson Wechner.
2.sæti  Jón Jóhannsson.
3.sæti  Valgeir M Valgeirsson.

Meistaraflokkur kvenna.
1.sæti  Birna Sigfúsdóttir.
2.sæti  Jóhanna G Jónasdóttir

1. flokkur karla.
1.sæti  Hafsteinn Pétursson.
2.sæti  Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson.
3.sæti  Helgi Haraldsson.

/SHV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir