Menningarfélag Akureyrar – MAk kynnir vetrardagskrána
MAk - Menningarfélag Akureyrar kynnir dagskrá vetrarins í fyrsta sinn frá því félagið tók við rekstri Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Menningarhússins Hofs um síðustu áramót. „Við höfum beðið þessa dags í ofvæni og er óhætt að segja að við séum stolt af þeirri fjölbreyttu og metnaðarfullu dagskrá sem er framundan hjá okkur í vetur,“ segir Gunnar I. Gunnsteinssonar framkvæmdastjóri MAk.
„Dagskráin okkar er fjölbreytt. Við leggjum metnað í að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Sérstök áhersla verður lögð á barna og fjölskyldusýningar þetta fyrsta starfsár okkar,“ segir Gunnar ennfremur.
Í ávarpi Gunnars segir:
Stærsta verkefni vetrarins hjá Leikfélagi Akureyrar er í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarhúsið Hof veður ný uppfærsla á fjölskylduverkinu Pílu Pínu eftir Heiðdísi Norðfjörð og Kristján frá Djúpalæk. Heil kynslóð ólst upp við að hlusta á plötuna og er óhætt að segja að sagan af litlu hugrökku músinni, sem leggur í ferðalag til að leita uppruna móður sinnar, snertir streng í hjarta margra. Leikstjóri er Sara Martí Guðmundsdóttir og tónlistastjóri er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Arnar Jónson snýr aftur á heimaslóðir þegar hann leikur í verkinu Býr Íslendingur hér? leikgerð Þórarins Eyfjörð byggða á frásögn Leifs Muller úr fangabúðum nasista. Verkið er frumsýnt í Samkomuhúsinu í september í leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar. Hér tökumst við á við erfiða tíma í heimssögunni og minnum okkur á ábyrgðina sem fylgir því að vera maður.
Í Hofi ætla Saga Garðarsdóttir og Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA) að frumsýna nýtt verk eftir þau sjálf; Þetta er grín, án djóks. Grýla verður á vappi í Samkomuhúsinu á aðventu og svo ætla fimm trúðar að takast á við það spennandi verkefni að bjarga „versta leikriti Íslandssögunnar“, Helgi hinn magri, eftir þjóðskáldið Matthías Jochumson í apríl.
Dimma og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur veturinn nk. föstudag með því að bjóða Akureyringum og gestum til pallasöngs, þar sem sungið verður saman við undirleik sinfóníunnar í tilefni nýs tónleikaárs og Akureyrarvöku. Strax í kjölfarið verður konsert uppfærsla á Ávaxtakörfunni og Skilaboðaskjóðunni. Jóhann G. Jóhannsson stjórnar hljómsveitinni og munu Stefán Karl Stefánsson, Selma Björnsdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Sigríður Thorlacíus ljá persónunum rödd sína.
Dimma ætlar að hrífa Sinfóníuhljómsveit Norðurlands með sér inn í sinn heim í október. Jólaóratóría J.S. Bach verður flutt 20. desember undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Gréta Salóme mun frumflytja efni sem hún sýnir fyrir Disney næsta sumar en þar má heyra margar af þekktustu perlum teiknimyndanna í bland við hennar eigin efni. Bjarni Daníelsson og Eva Guðný fiðluleikari munu bjóða okkur upp á Mozart í apríl.
Guðmundur Pétursson frumflytur verk eftir sig fyrir rafmagnsgítar og sinfóníuhljómsveit í mars. Tvö verk í viðbót verða frumflutt á árinu; Völuspá eftir Þorvald Bjarna og nýtt verk samið af Kjartani Valdimarssyni fyrir sinfóníuhljómsveitina og Stórsveit Reykjavíkur en Sigurður Flosason mun þreita frumraun sína á þeim tónleikum sem stjórnandi sinfóníuhljómsveitar. Einnig verður fleira í boði eins og Kristjana Arngrímsdóttir með tónleika tileinkaða konum í nóvember, Töfrahurðin fyrir yngstu áhorfendurna verður í janúar, Värttinä frá Finnlandi undir stjórn Guðna Franzsonar í febrúar.
Hér er þó aðeins tæpt á því helsta af þeim 20 viðburðum sem framleiddir eru á árinu. Einnig mun Menningarhúsið Hof bjóða fjölda listamanna velkomna og nægir þar að nefna Friðrik Ómar sem verður með Tinu tónleika og einnig nýja jólatónleika í desember, Norðurljósin, Óperudraugana, Nýdönsk, Karlakórinn Heimi og Ljótu hálfvitana svo lítið eitt sé tínt til.
Vert er að minnast á að leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar mun hefja starfsemi sína í september og stendur yfir skráning fyrir skapandi krakka á www.MAk.is.
Samstarf við listamenn og aðrar stofnanir lykilatriði
Í fréttatilkynningunni segir jafnframt að Hof fagnar 5 ára afmæli núna í ágúst og að ljóst sé að bygging þessa menningarhúss hefur verið gæfuspor fyrir menningarlífið og bætta aðstöðu til ráðstefnu og fundarhalda norðan heiða.
„Samstarf við listamenn og aðrar stofnanir er eitt af lykilatriðum í rekstri MAk. Á dögunum var gengið frá samkomulagi um menningarbrú milli Hofs og Hörpu sem nú þegar er farið að skila sér í spennandi samstarfi á komandi vetri þegar Dimma og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands spila 31. október í Hörpu. Þá munu Sinfóníuhljómsveit Íslands og Þjóðleikhúsið sækja Norðlendinga heim ásamt fjölda annarra viðburðahaldara og sjálfstæðra sviðslistahópa.
Með langa og farsæla sögu leikfélagsins, eldmóð og kraft sinfóníuhljómsveitarinnar og frábæran húsakost Hofs eru okkur allir vegir færir. Kæru norðlendingar og aðrir landsmenn, við hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Samkomuhúsinu og Hofi á Akureyri næsta vetur,“ segir framkvæmdastjóri MAk að lokum.
Almenn miðasala og sala áskriftarkorta hefst kl. 10 í dag, fimmtudaginn 27. ágúst.