Menningarkvöld í Kántrýbæ 30. des
Menningarkvöld á jóladögum verður haldið annað kvöld 30. desember 2010, kl. 20.30 í Kántrýbæ en þar mun Dadda spákona rýna í komandi ár og Ari Eldjárn verður með uppistand á sinn einstaka hátt.
Tónlist verður framin af; Jonna, Hugrúnu, Siggu, Halldóri, Guðlaugi Ómari, Ómari Ísak, Kristjáni Ými, Söru Rut, Fúsa, Almari, Magga Lín, Guðrúnu Önnu og Birtu.
Miðaverð á menningarkvöldið er 1.000 kr. og rennur allur ágóði til styrktar fjölskyldu sem á um sárt að binda eftir slys. Kostnaður við menningarkvöldið er borinn uppi með styrkjum frá fyrirtækjum og sveitarfélögum.
