Mesta veiðin í meira en aldarfjórðung
Formlegri veiði í Laxá á Ásum lauk 10. september síðastliðinn eins og fram kemur í frétt á vefnum huni.is. Alls veiddust 1.604 laxar í sumar sem er mesta veiði í rúman aldarfjórðung, eða síðan árið 1988 þegar 1.617 laxar veiddust. Þetta er þriðja árið í röð sem fleiri en þúsund laxar veiðast í ánni.
Aðeins er veitt á tvær stangir sem þýðir að 802 laxar veiddust á stöng í sumar sem gerir um tíu laxa á stöng á dag, segir ennfremur á vefnum huni.is.
„Segja má að Laxá á Ásum hafi náð vopnum sínum á ný síðustu ár. Árin 1999 til 2012 fór veiðin aðeins einu sinni yfir þúsund laxa en það var árið 2009. Árið 2012 veiddust eingöngu 211 laxar en síðustu þrjú ár hafa öll gefið yfir þúsund laxa, 1.062 árið 2013, 1.006 árið 2014 og svo 1.604 í ár. Þetta mun vera í fyrsta skipti síðan um miðjan níunda áratuginn sem áin skilar meira en þúsund löxum þrjú ár í röð,“ segir að lokum á huni.is.