Metabolic á Blönduósi
Hrefna Aradóttir, ÍAK einkaþjálfari og Erla Jakobsdóttir, íþróttafræðingur bjóða Blönduósingum uppá Metabolic námskeið sem hefur slegið í gegn um allt land. Helgi Jónas Guðfinnsson, kennari við ÍAK einkaþjálfaranámið hjá Keili, körfubolta- og styrktarþjálfari hannaði námskeiðið og hafði það að leiðarljósi að námskeiðið ætti að vera árangursríkt, skemmtilegt, markvisst og öruggt.
Metabolic námskeiðið hefst 27. ágúst, í boði verða 5 tímar í viku; mánudaga og þriðjudaga kl: 19.00, miðvikudaga kl:06:15, fimmtudaga kl:18:00 og föstudaga kl:06:15. Kennt verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
Þessa vikuna verður boðið upp á fría prufutíma þar sem allir eru velkomnir í Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Tímarnir verða í dag og miðvikudaginn klukkan 18.00-18.45 og á morgun og fimmtudaginn klukkan 06.15 - 07.00.