Metslátrun hjá SAH

Sá áfangi náðist hjá SAH Afurðum í vikunni að slátrun sauðfjár fór í fyrsta skipti yfir 100.000 fjár. Enn er eitthvað eftir og unnið verður á fullum afköstum fram á morgundaginn þegar slátrun lýkur. Á heimasíðu SAH segir að þetta sé merkur áfangi í sögu félagsins, en það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að til þessa kæmi. Gripur númer 100.000 reyndist vera hinn vænsti dilkur frá Jóni Inga í Fagranesi.

 

Þessi árangur væri ekki mögulegur nema með samstilltu átaki einstaklega öflugs starfsfólks, sem lagt hefur mjög hart að sér til að þessi áfangi næðist. Flestir starfsmenn hafa starfað fyrir félagið í margar vertíðir og því öllum hnútum kunnugir. Brátt hverfa flestir erlendir starfsmenn til síns heima og er þeim þakkað fyrir samstarfið þetta haustið á heimasíðunni með von um að þeir mæti sem flestir að ári liðnu.

Fleiri fréttir