Michael farinn -Josh Rivers væntanlegur
Michael Fratangelo er farinn til síns heima eftir vonbrigðadvöl hjá Tindastóli nú á undirbúningsímabilinuJosh Rivers, sem upphaflega átti að koma til Tindastóls en hætt við það sökum mikils tíma sem fór í fyrir hann að afla sér sakavottorðs frá FBI, er nú aftur á leiðinni til félagsins, þar sem hann er kominn með öll tilskilin gögn til að verða hér löglegur leikmaður.
Vera Michaels Fratangelos varð styttri en fyrirhugað var í Skagafirði, þar sem í ljós kom að leikmaðurinn var meiddur við komuna til Tindastóls og náði sér ekki af meiðslunum sem hrjáðu hann meira en hann sjálfur hafði gert ráð fyrir. Varð þetta talsvert áfall fyrir Tindastólsliðið enda átti Mike að verða leikstjórnandi liðsins auk þess sem hann gat spilað fleiri stöður á vellinum.
Búist er við því að Josh komi til landsins öðru hvoru megin við aðra helgi, en það veltur sannarlega á leyfismálum hans hjá Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun, sem þó afgreiða leyfi snarlega reynist öll gögn vera í lagi.
Tindastóll heldur í æfingaleikjaferð suður á bóginn um næstu helgi, en þar verður leikið gegn Stjörnunni á laugardag, Þór Þorlákshöfn á sunnudagsmorgun og við Skallagrím seinni part sunnudags.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.