„Midnight Sun Burnout“
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
23.06.2015
kl. 11.01
Á laugardaginn verður sýningin Midnight Sun Burnout í Kvennaskólanum á Blönduósi. Sýningin sem er um hvernig útlendingar bregðast við miðnætursól á Íslandi verður opin kl 15 til 18 á laugardaginn.
Listakonurnar sem taka þátt eru: Helen O´Shea frá Írlandi, Soojin Kang frá Kóreu, Cornelia Theimer Gardella frá Þýskalandi og Bandaríkjunum, Emelie Rygfelt Wilander frá SvíÞjóð og Melody Laglína Skógarhneta frá Ástralíu. Listakonurnar vinna meðal annars með vefnað, þæfingu, gjörning og litla hluti. Allir eru boðnir velkomnir á sýninguna.