Mikið að gera hjá utanríkisráðherra

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur haft í mörg horn að líta undanfarið og fundað með valdamestu mönnum heims m.a. á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Síðastliðið mánudagskvöld hitti hann og hans ektakvinna Elva Björk Guðmundsdóttir þau heiðurshjón Obama Bandaríkjaforseta og eiginkonu hans, Michelle í boði þeirra síðarnefndu. Á Fésbókarsíðu sinni segir Gunnar Bragi að Obama hafi spurt um heilsu Sigmundur Davíðs Gunnlaugssonar og hvort fóturinn væri að jafna sig en sá ágæti fótur rataði í heimspressuna fyrir skemmstu.

Samkvæmt heimasíðu utanríkisráðuneytisins átti Gunnar Bragi þann sama dag fund með Satu Santala, aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í stjórn Alþjóðabankans en hún var stödd hér á landi. Á fundinum ræddu þau um framvindu helstu mála innan Alþjóðabankans, einkum hina nýju heildarstefnu bankans og innleiðingu hennar. Þá ræddu þau einnig fyrirhugaða setu Íslands í þróunarnefnd Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á næsta ári.

Í síðustu viku heimsótti Gunnar Bragi Ottawa í Kanada þar sem hann fundaði með kanadískum ráðamönnum og fulltrúum úr viðskiptalífi landsins. Heimsóknin var liður í áherslum íslenskra stjórnvalda á að efla tengslin vestur um haf.

-Við höfum átt innihaldsríka fundi um samskipti landanna sem marka vonandi upphafið að sterkara sambandi Íslands og Kanada á ýmsum sviðum, segir utanríkisráðherra á vefsíðu utanríkisráðuneytisins.

Utanríkisráðherra hitti einnig fulltrúa úr kanadísku viðskiptalífi til að ræða leiðir til að auka og styrkja viðskiptasamband Íslands og Kanada.

Fyrir helgi átti Gunnar Bragi fund með Knud Bartels, hershöfðinga og formanni hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins, sem var staddur hér á landi í heimsókn. Á fundinum ræddu þeir framtíðarþróun bandalagsins, Mið-Austurlönd, loftrýmiseftirlit á Ísland, netöryggi og öryggismál á norðurslóðum.

Gunnar Bragi og Knud Bartels voru sammála um að framkvæmd loftrýmiseftirlits á Íslandi hafi gengið vel síðastliðin fimm ár. Á þessu tímabili hafa átta bandalagsþjóðir tekið þátt í sextán loftrýmisvöktum.  Á fundinum var rætt um mögulega fjölgun á vöktum í fjórar árlega í samræmi við ákvörðun fastaráðs Atlantshafsbandalagsins frá 2007. Gunnar Bragi sagði þátttöku Svíþjóðar og Finnlands í loftrýmiseftirliti í febrúar á næsta ári vera mikilvægan áfanga í norrænu varnarsamstarfi.

Sama dag ávarpaði Gunnar Bragi nemendur Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna við útskrift þeirra frá skólanum. Tíu nemar frá sjö löndum voru í útskriftarhópnum, fimm konur og fimm karlar, en alls hefur 51 nemandi lokið námi við skólann.

Fleiri fréttir