„Mikið framfaraár hjá lögreglunni“

Páll Björnsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra er í opnuviðtali Feykis. Ljósm./BÞ
Páll Björnsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra er í opnuviðtali Feykis. Ljósm./BÞ

Um áramót gengu í gildi einar umfangsmestu breytingar í sögu lögreglunnar þegar fullur aðskilnaður varð á milli sýslumanna og lögreglunnar. Lögreglan á Blönduósi og Sauðárkróki voru sameinaðar í Lögregluna á Norðurlandi vestra með aðalaðsetur á Sauðárkróki. Páll Björnsson var skipaður í embætti lögreglustjóra en hann á langan starfsferil að baki sem sýslumaður á Höfn í Hornafirði. Blaðamaður Feykis leit við á stöðinni og spurði Pál út í líf og störf lögreglustjórans og er hann í opnuviðtali Feykis sem kom út í dag.

Páll tók til starfa um áramótin og fram til þessa hefur starf hans gengið út á að klára þær breytingar sem gerðar hafa verið á lögregluembættinu. Þegar Páll er spurður hvort einhverjar áherslubreytingar hafi orðið frá áramótum svarar hann að breytingar á áherslum séu ekkert endilega bundnar við hvert embætti fyrir sig heldur gjarnan hafðar á landsvísu.

„Ríkislögreglustjóri er til þess að samræma störf lögreglunnar í landinu almennt og það leiðir til þess að áherslur koma jafnt yfir landið. Áherslubreytingar koma með ýmsu móti og best að þær komi ekki í skyndingu,“ segir hann og heldur áfram: „Peningar er það sem málið snýst mikið um. Málið er það að lögreglan, eins og fleiri, hefur verið geysilega fjársvelt. Það verður að segjast eins og er en þetta stendur til verulegra bóta og hefur verið gert á þessu ári. Það er aukið fé, fyrir utan breytingar á húsnæðinu sem ég nefndi áðan sem hafa verið til beinna framfara, þá er búið að endurnýja mikið af húsbúnaði, tækjum og fleiru og við eigum von á meiri stuðningi í þessu.“

Páll nefnir lögreglubíla embættisins sem dæmi og segir hann von á frekari endurnýjun á þeim á næstunni, jafnvel á þessu ári, og stendur til að endurnýja tvo þeirra, annan á Blönduósi og hinn í Skagafirði.

„Lögreglubíll er feykilega mikið samansafn af tækjum og tólum en það er hlutur sem skiptir miklu máli. Þetta hefur verið mikið framfaraár hjá lögreglunni varðandi þessa hluti. En við skulum láta árið líða áður en við segjum að breytingarnar sem slíkar séu farnar að skila sér,“ útskýrir Páll.

Húnvetningur aftur á heimaslóðir

Það má segja að Páll hafi verið að koma aftur á heimaslóðirnar þegar hann fluttist yfir landið þvert og endilangt og tók að sér starf lögreglustjóra Norðurlands vestra. Hann er Húnvetningur að upplagi, fæddur og uppalinn á Ytri-Löngumýri  í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu. Páll er fæddur árið 1948, þriðji elstur af tíu systkinum. Foreldrar hans hétu Björn Pálsson og Ólöf Guðmundsdóttir og segist Páll vera kominn af bændafólki í báðar ættir.

Viðtalið í heild sinni má lesa í Feyki vikunnar. 

Fleiri fréttir