Mikið um að vera á Sjómannadeginum á Skagaströnd
Nú styttist óðfluga í sjómannadaginn og undirbúningur kominn á fullt skrið hjá Björgunarsveitinni Strönd. Nú leita þeir eftir fólki til að taka þátt í undirbúningi og vinnu við sjómannadagshátíðarhöld sem þann 2. júní nk. „Nú gerum við þennan dag að hátíðisdegi sem allir geta verið stoltir af,“ segir á heimasíðu björgunarsveitarinnar.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við fulltrúa björgunarsveitarinnar, Reyni eða Bjarna eða hafa samband í síma 894 4006.
Þeir aðilar sem eru með róðrarsveitir eru einnig beðnir um að hafa samband og láta skrá sveit sína í kappróðurinn. „Nú viljum við sjá sem flestar sveitir svo það verði hörku keppni og mikið fjör,“ segir loks á heimasíðunni.
Björgunarsveitarmenn ætla einnig að ganga í hús og bjóða fólki að kaupa merki sjómannadagsins.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrá Sjómannadagsins á Skagaströnd.