Mikið um óhrein löndunarkör

Sumareftirlitsmenn Matvælastofnunar hafa nú lokið störfum en þeir voru tveir og störfuðu á höfnum á Norðurlandi, Suðurvesturlandi og Vesturlandi. Verkefni þeirra var að mæla hitastig landaðs afla, kanna aflameðferð og löndunaraðstæður. Enn sjást merki um það viðhorf að ekki sé þörf á kælingu afla, segir á heimasíðu Matvælastofnunar.

Eftirlitsmenn mældu hitastig afla um 500 báta og voru mælingarnar tæplega 1900. Rúm 90% mælinganna voru gerðar á afla handfærabáta og var 70% aflans þorskur, 20% ufsi og 10% aðrar tegundir. Þegar á heildina er litið var meðferð afla nokkuð góð. Um borð var aflinn yfirleitt geymdur í lest eða í lokuðu kari á dekki, aðeins í 10% tilfella var afli óvarinn á dekki. Vel var staðið að þrifum og umgengni góð í 90% skoðaðra báta, segir í skýrslu MAST.

Meðalhitastig afla við löndun í júní og júlí var 2,8°C og 76% mælinga sýndi hitastig undir 4°C. Þetta er mikil breyting frá fyrra ári en þá var meðalhitastig afla 3,6°C og 65% voru innan við 4°C.

Afla sem landað var í Stykkishólmi hafði gengið illa að kæla, meðalhitinn var 4°C og aðeins rétt rúmur helmingur var undir 4°C. Hins vegar var meðalhiti lægstur á afla lönduðum á Sauðárkróki 1,9°C. Skiptin milli íss og krapa sem kælimiðils var nokkuð jöfn en mjög breytileg eftir landshlutum. Þannig höfðu þeir sem lönduðu á Siglufirði flestir kælt með krapa, eða 86% en aðeins 24% þeirra sem lönduðu í Ólafsvík. Hlutfall þeirra sem lönduðu ókældum fiski fór hæst í 6% og var það á Rifi. Þá kom það fyrir að svokallaður meðafli var ekki kældur.

Að þessu sinni voru 20 hafnir skoðaðar og fengu flestar þeirra nokkuð góða einkunn. Yfirleitt var umgengni um löndunarsvæðið góð, löndunarbúnaður hreinn og vatn til þrifa aðgengilegt. Umsögn eins og „allt til fyrirmyndar“ og „mjög snyrtileg höfn“ fengu t.d. hafnirnar á eftirtöldum stöðum: Arnarstapa, Grundarfirði, Dalvík og Skagaströnd. Hins vegar var nokkuð um að fugl kæmist í aflann og þar voru hafnirnar í Ólafsvík, Sandgerði, Siglufirði, Stykkishólmi og á Skagaströnd nefndar.

Mikið er um óhrein löndunarkör á höfnum landsins og gerðu eftirlitsmenn lauslega könnun á ástandi löndunarkara og annarra íláta sem notuð eru undir fisk. Algengast var að löndunarkör á höfnum, sem merkt eru Umbúðamiðlun, væru óhrein og þau ekki þrifin fyrir notkun.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir