Mikil veiði í Blöndu

Sumarið er á enda komið og styttist í að veiði ljúki í laxám landsins. Ólíklegt er að veiðimetið frá því í fyrra verði slegið úr þessu en veiðitölur sýna að veiðimenn geta engu að síður vel við unað. Af stærri ám jókst veiði mest í Blöndu á milli ára. Þetta kemur fram á Húni.is
Landssamband veiðifélaga birti á dögunum veiðitölur úr 25 viðmiðunarám fyrir það sem af er tímabilinu. Heildarveiði nú er 33.957 laxar en var á sama tíma í fyrra 37.317 laxar. Það munar því 3.360 fiskum, eða nálægt tíu prósentum.
Þorsteinn Þorsteinsson, vefumsjónarmaður Landssambands veiðifélaga, bendir á að veiðisumarið í fyrra hafi verið metár og aflinn í ár nokkuð góður.
"Ég held að þetta komi alveg til með að ná meðalgóðri veiði," segir hann. "Vestanlands hefur reyndar verið of þurrt víða en það hefur ekki verið vandamál á vestanverðu Norðurlandi og í Húnavatnssýslunum, enda mjög góð veiði þar víðast hvar."
Athygli vekur hversu mikið veiði hefur aukist í Blöndu. Í fyrra veiddust þar 986 laxar en eru nú þegar orðnir 2.268.
"Það er langt síðan það veiddist svo mikið í Blöndu," segir Þorsteinn. Aðstæður hafi verið veiðimönnum mjög hagstæðar. "Það spilar sjálfsagt ekki síst inn í að Blöndulón er vant að fyllast snemma í ágúst en eftir því sem ég best veit er það ekki fullt enn. Þá er líka glæsilegur árangur í Miðfirðinum og smærri ám, til dæmis Gljúfurá, Tjarnará og fleirum.
Á heimasíðu Landssambands veiðifélaga, www.angling.is, má finna samantekt á veiðitölum 25 viðmiðunaráa um allt land.
Heimild: Fréttablaðið
