Mikilvægt að íbúar geti fengið heilbrigðisþjónustu í sinni heimabyggð

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps lýsir yfir áhyggjum af þróun heilbrigðisþjónustu í héraðinu í ljósi þeirra staðreyndar að Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi hefur búið við mikinn samdrátt síðastliðin ár. Í nýútkominni skýrslu Hagfræðistofnunar kemur fram að starfsmönnum fækkaði um 25% frá árinu 2007 til 2011, úr 60 í 45, og er nú svo komið að lengra verður ekki komist án þess að það bitni verulega á þjónustu við íbúanna, segir í bókun frá síðasta fundi sveitarstjórnarinnar.

„Af gefnu tilefni leggur sveitarstjórn Húnavatnshrepps mikla áherslu á að staðið verði vörð um heilbrigðisþjónustu í héraðinu. Ef að sameiningaráform heilbrigðisráðherra og Velferðarráðuneytis ganga eftir fer sveitarstjórn Húnavatnshrepps fram á að það verði tryggt að sú breyting leiði ekki til skertrar þjónustu fyrir íbúana né frekari fækkunar starfa. Það er afar mikilvægt að íbúar geti fengið heilbrigðisþjónustu í sinni heimabyggð,“ segir bókuninni.

Fleiri fréttir