Miklar annir hjá björgunarsveitum

Vonskuveður hefur gengið yfir landið undangenginn sólarhring og valdið rafmagnsleysi víða um norðurland. Enn er rafmagnslaust í Unadal og Deildardal í Skagafirði, samkvæmt heimildum Rúv.is. Rafmagn er komið á í Vestur-Hópi og Blönduhlíð og að hluta til í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. 

Miklar annir hafa verið hjá björgunarsveitarmönnum á svæðinu í ýmsum störfum, m.a. að hjálpa bændum við að bjarga sauðfé sem fennti í gær, og einnig til að hjálpa starfsmönnum RARIK. Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar var kallað út í Varmahlíð, á Blönduósi, Hofsósi og einnig Sauðárkróki.

Björgunarsveitin á Sauðárkróki aðstoðaði starfsmenn Rarik við að losa ísingu af rafmagnslínum. Um kl. 1 var hún kölluð út á ný til að festa báta í höfninni sem voru teknir að losna og gekk það vel.

„Sveitirnar voru kallaðar út um hádegi og voru að störfum langt fram eftir kvöldi við ýmis verkefni. Aðalverkefni sveitanna var að aðstoða RARIK við að brjóta ís af línum og koma á sambandi aftur þar sem að línur höfðu slitnað. Einnig var mikið af bílum upp á Vatnsskarði og Þverárfjalli sem þurftu aðstoð og lokuðu sveitirnar báðum fjallvegunum um tíma,“ segir á heimasíðu Skagfirðingasveitar.

Það á að hægja á veðurhamnum með kvöldinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands fyrir næsta sólarhringinn, og verða norðvestan 8-13 og skýjað en úrkomulítið. Hægari í kvöld. Hiti 2 til 7 stig, en kringum frostmark í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Norðaustan og norðan 10-15 m/s, en suðvestan 8-13 SA-til. Rigning víða um land og hiti 3 til 12 stig, mildast S-til.

Á föstudag:
Norðvestan 8-10 m/s NA-lands, en annars hægari og skúrir víða á landinu. Gengur í suðaustan 8-13 með rigningu SV-lands undir kvöld. Hiti 5 til 10 stig.

Á laugardag:
Snýst í norðlæga átt með rigningu, en slyddu fyrir norðan. Kólnar í bili.

Á sunnudag og mánudag:
Breytilegar áttir, skúrir og milt veður að deginum.

 

Fleiri fréttir