Miklir hagsmunir í húfi

Rússar hafa sett viðskiptabann á vörur frá Íslandi og fjórum öðrum löndum. Forsætisráðherra Rússlands, Dimitri Medvedev, tilkynnti þetta á ríkisstjórnarfundi í dag en hann segir löndin fimm hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að styðja viðskiptabannið gegn Rússum. 

Íslensk stjórnvöld sendu frá sér tilkynningu fyrir stundu þar sem ákvörðun rússneskra yfirvalda að bæta Íslandi á lista yfir lönd sem sæta innflutningsbanni til Rússlands sé hörmuð. Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins liggur fyrir að íslenskar vörur verði ekki tollafgreiddar og hætta sé á að vörum verði fargað á landamærunum.

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við höfum leitað allra leita til að útskýra afstöðu okkar fyrir rússneskum stjórnvöldum og þá hagsmuni sem undir eru,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Í fréttatilkynningunni segir að ljóst er að bannið felur í sér að íslenskum fyrirtækjum verður ekki lengur unnt að markaðssetja sjávarafurðir í Rússlandi auk þess sem bannið tekur til landbúnaðarvara að frátöldu lambakjöti, ærkjöti, hrossakjöti og niðursoðnu fiskmeti í dósum.

„Ísland mun halda áfram því samtali sem ráðherrar og embættismenn hafa átt við Rússa á síðustu vikum til að draga úr áhrifum þessarar ákvörðunar,“ segir loks í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Unnið að því að finna nýja markaði

„Þetta er töluvert áfall,“ sagði Gylfi Guðjónsson útgerðastjóri hjá FISK Seafood á Sauðárkróki. Viðskiptabannið hefur mikil áhrif á FISK Seafood, líkt og önnur fyrirtækjum sem starfa í sjávarútvegi, en að sögn Gylfa var gert ráð fyrir að selja drjúgan hluta af makríl til Rússlands.

„Við erum að vinna í því að finna nýja markaði en það tekur allt tíma. Þetta er auðvitað mjög slæmt, þetta eru miklir hagsmunir,“ sagði Gylfi í samtali við Feyki.

Fleiri fréttir