Milljón í verðlaunafé

Fréttatilkynning frá Michelsen úrsmiðum í tilefni af ráni. Eins og kunnugt er var framið vopnað rán af þremur óþekktum mönnum í gær í verslun okkar, Michelsen úrsmiðum, að Laugavegi 15. Ræningjarnir komust undan með umtalsvert magn af þýfi; Rolex, Tudor og Michelsen úr. Í ljósi þess hversu alvarlegur þessi atburður er þar sem beitt var ofbeldi með skotvopnum, til að skapa skelfilega ógn og ótta, við rán úr verslun í miðborg Reykjavíkur er ljóst að við slíkt má ekki una. 

Michelsen úrsmiðir bjóða til handa þeim er gefur upplýsingar sem leiðir til þess að ránið upplýsist og að þýfið komi fram EINA MILLJÓN KRÓNA  í verðlaunafé. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar sem varðar ránið er bent á að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á abending@lrh.is

 

Fleiri fréttir