Minnkandi frost á morgun
Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi. Austlæg átt, 3-8 m/s og léttskýjað verður á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag, en 8-15 og skýjað með köflum og þurrt að kalla á morgun. Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum, en minnkandi frost á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Gengur í austan 13-23 m/s, hvassast við S-ströndina. Él á S- og A-landi og snjókoma undir kvöld, en annars úrkomulítið. Hiti 1 til 5 stig syðst, annars 0 til 10 stiga frost, kaldast fyrir norðan.
Á fimmtudag:
Austan hvassviðri eða stormur syðst á landinu, en annars víða allhvass vindur. Snjókoma eða slydda S- og A-lands, en annars él. Léttir til á V-landi seinnipartinn. Hiti 1 til 5 stig við S-ströndina, en frost annars 0 til 5 stig.
Á föstudag:
Norðaustlæga átt með snjókomu A-lands, éljum fyrir norðan, en annars bjartviðri. Frost 0 til 8 stig.
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir áframhaldandi norðaustlæga átt með éljum N- og A-lands, en annars bjartviðri. Hiti breytist lítið.