Minnsta atvinnuleysi á Norðurlandi vestra

Skráð atvinnuleysi í júní 2011 var 6,7% ef litið er til landsins alls, sem er örlítið minna en var í maí þegar það mældist 7,4% og 8,1% í apríl. Að meðaltali voru 11.704 manns atvinnulausir í júnímánuði og fækkaði atvinnulausum um 849 að meðaltali frá maí eða um 0,7 prósentustig.

Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 675 að meðaltali en konum um 174. Var atvinnuleysið 6,8% meðal karla og 6,7% meðal kvenna. Atvinnuleysið hefur lækkað hraðar meðal karla en kvenna síðustu mánuði, var 7,7% meðal karla í maí og 8,6% í apríl, en meðal kvenna var atvinnuleysið 7,1% í maí og 7,4% í apríl.

Atvinnulausum fækkaði um 483 á landsbyggðinni milli maí og júní en 366 á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgarsvæðinu en 5,1% á landsbyggðinni. Atvinnuleysið hefur minnkað meira á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði.  Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum 10,6%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,3% en þar voru alls 100 atvinnuleitendur skráðir sem er það minnsta frá september 2010 þegar 99 manns voru á þeim lista.

Fleiri fréttir