Misrétti við skipan í fasta- og alþjóðanefndir Alþingis
Landsstjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir furðu sinni á nýrri skipan í fasta- og alþjóðanefndir Alþingis. Á sama tíma og rætt er um kynjaða hagstjórn og stefnt er að því að hlutur kvenna í stjórnum fyrirtækja verði ekki minni en 40% í lok árs 2013 situr ein kona skipuð sem aðalmaður í fjárlaganefnd Alþingis eða einungis 11% nefndarmanna.
Eins vekur það athygli að af aðalmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd eru eingöngu 2 konur eða 22% nefndarmanna. Sama hlutfall er að finna í bæði í atvinnuveganefnd og utanríkismálanefnd.
Landsstjórn Landssambands framsóknarkvenna ályktar að Alþingi þurfi að setja sér skýrar jafnréttisreglur við val í nefndir sínar. Þær má t.d. útfæra þannig að hver þingflokkur/stjórnmálaafl tilgreini ætíð konu og karl sem aðal- og varamann og þegar nefndirnar séu settar saman sé tekið tillit til fjölda beggja kynja og sé um skakkt kynjahlutfall að ræða sé aðalmanni af því kyni sem offramboð er af skipt út fyrir varamann af hinu kyninu. Geti þingflokkar ekki komið sér saman um hver þarf að skipta út fólki skuli varpað hlutkesti.
/Fréttatilkynning