Misstu 60 hross í afrétt

Skagfirðingar voru á ferð með 60 hross í gegnum afrétt í Austur-Húnavatnssýslu og Staðarafrétt, nánar tiltekið í Laxárdal, er þeir týndu öllum hrossunum. Hófu þeir að smala hrossunum án leyfis, þar á meðal afréttarpening en óheimilt er að ónáða hross á afrétt.

Fjallskilanefnd Austur Húnavatnssýslu og Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar ásamt Fjallskilastjórn Staðarafréttar sendu frá sér svohljóðandi yfirlýsingu að gefnu tilefni:

„Með vísan til 13. Greinar laga um afréttarmál, fjallskil o.fl. en þar segir að enginn má smala afrétt né gera afréttarbúpeningi ónæði nema með leyfi viðkomandi sveitarstjórnar. Ferðamenn með rekstur hrossa eru hvattir til leita sér upplýsinga um þá leið sem þeir ætla sér að fara. Þegar hross eru rekin um afrétt þarf að hafa lágmarks fjölda vel ríðandi manna til að reksturinn lendi ekki saman við stóðhross í afrétt. Einnig viljum við minna á að utanvega akstur vélknúinna ökutækja er bannaður.“

Fleiri fréttir