Mjög góð aðsókn í sumar á Selasetrið

Mjög góð aðsókn hefur verið á Selasetur Íslands þetta sumarið og nú þegar hafa komið yfir 16.500 gestir í heimsókn. „Í fyrra fengum við 10.300 gesti í heimsókn frá maí til október og því erum við mjög ánægð með aukninguna,“ segir á heimasíðu setursins.

„Flestar urðu gestakomurnar í júlí, þegar 5.541 gestir komu á Selasetrið, en ágúst fylgdi þar skammt á eftir með 5.171. Rétt rúm 43% gesta fóru inn á safn Selasetursins þetta sumarið. En aðrir leituðu sér m.a. upplýsinga um hvar væri hægt að finna seli út í náttúrunni og/eða versluðu í búðinni okkar.“ 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir