Mögnuð töfrasýning Einars um helgina

Núna um helgina mun Einar Mikael töframaður heimsækja norðurland með eina mögnuðustu og mestu töfrasýningu sem farið hefur um Ísland. ´´Ég er mjög spenntur að fá að heimsækja norðurlandið en ég er búinn að fá góðan félaga minn galdrakarlinn í OZ til að vera kynnir svo þetta á eftir að verða magnað´´, segir töframaðurinn Einar.

 

Einar segir að sýningin sé stútfull af áhrifamiklum töfrabrögðum og miklum húmor. Þetta er 70 mín. löng fjölskylduvæn töfrasýning sem hefur að geyma allt það besta sem töframaðurinn Einar Mikael er búinn að vera að vinna markvist að síðastliðin 3 ár. Einar notar lifandi dýr í atriðunum sínum, lætur hluti svífa og breytir áhorfenda tímabundið í töframann. Einar er einn allra færasti töframaður okkar íslendinga um þessar mundir og er sýningin hans einstök og inniheldur nokkur atriði sem eru á heimsmælikvarða. Að sögn Einars er þetta sýning sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Eftir sýninguna gefst gestum færi á að hitta töframanninn og taka myndir með honum. Einnig er hægt að kaupa töfradót Einars Mikaels eftir sýninguna.

Einar verður með sýningar sínar á Blönduósi laugardaginn 12. nóv. og á Hvammstanga sunnudaginn 13. nóv. og hefjast þær báðar klukkan 15:00.

Nánari upplýsingar er hægt að sjá á tofrabrogd.is

Fleiri fréttir