Mokstur hafinn á Þverárfjallsvegi
Mikið er autt á vegum á Norðurlandi vestra en hálkublettir á köflum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er verið að moka Þverárfjall þar sem er þungfært og eins er verið að opna Siglufjarðarveg.
Enn varar Vegagerðin við vegaskemmdum á Þverárfjallsvegi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát. Þar er vegur mjög ósléttur og er hraði því tekinn niður í 70 km/klst.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 8-15 m/s og él í dag, frost 1 til 8 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðan og norðaustan 5-13 m/s og snjókoma allra syðst, annars víða él, síst þó vestanlands. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands en mildast við SV-ströndina.
Á laugardag:
Austan og norðaustan 8-15 m/s. Snjókoma eða slydda á SA-landi, og él á Norður og Austurlandi annars úrkomulítið. Frost víða 0 til 5 stig, en hlánar með S-ströndinni.
Á sunnudag:
Austan- og norðaustan 10-18 m/s með slyddu eða rigningu, en snjókomu um landið norðanvert. Talsverð úrkoma A-til á landinu en úrkomulítið SV-lands. Hlýnandi veður.
Á mánudag:
Norðlæg átt og víða rigning á sunnanverðu landinu en slydda eða snjókoma norðan og austantil og úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast syðst.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir norðanátt með éljum NA-lands en bjartviðri s- og V-lands og frosti um allt land.