Mótaröð Neista hefst á fimmtudag
Fyrsta mót í Mótaröð hestamannafélagsins Neista verður fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20:00 í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Keppt verður í T7, 1 hringur hægt tölt og 1 hringur frjáls ferð, í opnum flokki, áhugamannaflokki og unglingaflokki þ.e. 16 ára og yngri.
Samkvæmt heimasíðu Neista er Mótaröð Neista stigakeppni fyrir Neistafélaga, þar sem 3 stigahæstu keppendur í hverjum flokki fyrir sig hljóta verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum.
Skráning er á netfang Neista neisti.net@simnet.is fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 12. febrúar. Fram þarf að koma; knapi og hestur, flokkur og uppá hvaða hönd er riðið. Skráningargjald er 1.000 kr fyrir hverja skráningu.
Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista neisti.net@simnet.is en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).
Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri (ekki er tekið við greiðslukortum).
10. bekkur í Blönduskóla verður með kaffi og eitthvað gott til sölu í sjoppunni.