Mugison í Sauðárkrókskirkju í kvöld
Mugison er nú staddur í rúmlega hálfnuðu kirkjumaraþoni og í kvöld er það Sauðárkrókskirkja en hún er númer 55 í röðinni af 100 kirkju tónleikum í 100 póstnúmerum fyrir jól hjá meistara Mugison.
Tónleikarnir eru um klukkutími að lengd og hægt er að nálgast miða á Tix.is á kr. 4.500 en það kostar kr. 5.000 sé greitt við inngang.
Nýtt póstnúmer og ný kirkja verður svo annaðkvöld laugardaginn 17. ágúst, þegar Mugison sækir Hofsós heim og heldur tónleika í Hofsóskirkju.