Mun minni menntun á landsbyggðinni

Tæp 30 prósent landsmanna á aldrinum 25 til 64 ára höfðu eingöngu lokið grunnmenntun á síðasta ári, eða 47.100 manns. Þetta kemur fram í niðurstöðum vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands og er um að ræða fækkun úr 34,6 prósent árið 2003.

Alls hafa um 35,8 prósent íbúa mest lokið starfs- og framhaldsmenntun (lokið námi á framhaldsskólastigi sem er að minnsta kosti tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi) eða 57.600 manns. Þá hafa 56.300 manns lokið háskólanámi, eða 35 prósent íbúa á Íslandi á þessu aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað nokkuð frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,7 prósent íbúa.

Mikill munur er á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Á höfuðborgarsvæðinu hafa 24,2 prósent íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 40,9 prósent hafa lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins hafa 37,8 prósent íbúa aðeins lokið grunnmenntun og 24,7 prósent lokið háskólamenntun.

Fleiri fréttir