Mynda hljóðgirðingu um ákveðin svæði

Jónas Björgvinsson stofnaði fyrirtækið Fuglavarnir.is síðastliðið vor en fyrirtækið selur hljóðkerfi sem fæla burt fugla án þess að skaða þá eða valda ónæði í umhverfinu. Tækið segir hann mynda einskonar hljóðgirðingu utan um ákveðin svæði og hægt sé að hrekja fyrirfram ákveðna fuglategund á brott með því að spila viðvörunarhljóð þeirra út í umhverfið.

„Flestir fuglar nota viðvörunarhljóð til að vara aðra fugla sömu tegundar við hættu - heyri þeir viðvörunarhljóð taka þeir ávallt mark á því og fara burt,“ útskýrir Jónas.

Hljóðkerfið segir Jónas henta við ýmsar aðstæður þar sem fæla þarf fugla á brott og hefur það gefið mjög góða raun, s.s. á flugvöllum, við hafnir og sjávarútvegsfyrirtæki og einnig um borð í bátum. Jónas segir fyrirtækið bjóða upp á tæki sem henti einstaklega vel fyrir landbúnaðinn til að halda gæsum í burtu.

„Árlega verða bændur fyrir miklu tjóni af völdum álfta og gæsa, aðallega þegar fuglarnir éta fræ og sáðkorn í nýrækt og kornrækt auk þess að éta uppskeru korns. Sem dæmi um fjárhagslegt tjón af slíku má nefna að sáðkorn kostar um 25 þúsund krónur á hektara, það er þá fyrir utan vinnu og véla- og eldsneytiskostnað, það er því til mikils að vinna, þegar fleiri tugir hektara geta legið undir skemmdum,“ segir Jónas.

Nánari umfjöllun um hljóðkerfið og viðtal við Jónas er að finna í Feyki sem kom út í gær.

Fleiri fréttir