Náðu í fyrstu tíuna á Landsmótinu
Ísólfur Líndal sýndi 5 vetra hryssuna Nútíð frá Leysingjastöðum á Landsmóti hestamanna á Hólum í gær. Hlutu þau fyrstu tíuna á kynbótabrautinni á þessu Landsmóti, fyrir hægt stökk.
Nútíð hlaut eftirfarandi dóm:
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 7,5 - 8,5 - 9,0 - 7,5 - 9,0 - 7,5 = 8,43
Hæfileikar: 9,0 - 8,0 - 5,0 - 8,5 - 9,0 - 9,5 - 8,5 = 8,22
Aðaleinkunn: 8,30 Hægt tölt: 9,5 Hægt stökk: 10,0 /KSE