Nældu sér í sjö gullverðlaun

Kjötiðnaðarmenn SAH Afurða ehf. á Blönduósi hlutu sjö gullverðlaun í Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna 2014. Alls voru um 140 innsendar vörur þetta árið svo úrvalið var mikið. Frá þessu er sagt á heimasíðu SAH afurða. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækið tekur þátt í keppninni. Þrír kjötiðnaðarmenn sem tóku þátt frá fyrirtækinu hlutu allir gullverðlaun í keppninni.

Fyrirkomulag keppni var þannig að keppendur sendu inn ómerktar vörur sem fóru fyrir dómnefnd. Þar mátu dómarar fjölmarga þætti er varða bragð, útlit, áferð og fl. Eftir að allir dómar lágu fyrir komu fram upplýsingar um framleiðendur og kjötiðnaðarmenn. Keppendur frá SAH Afurðum voru þau Elmar Sveinsson, Bergþór Pálsson og Gunnhildur Þórmundsdóttir og hlutu þau öll gullverðlaun. Auk þess fékk Bergþór Pálsson sérstök verðlaun fyrir bestu vöru í flokki grafinna og reyktra laxfiska.

Fagkeppnin var mjög gæsileg í alla staði þetta árið og gaman að sjá allar þessar nýju hugmyndir á einum stað. Þetta er í fyrsta sinn sem kjötiðnaðarmenn frá SAH Afurðum taka þátt í Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna. Björn Kristjánsson tók þátt fyrir hönd Sölufélag Austur-Húnvetninga svf. árið 1998 og vann þá gullverðlaun fyrir sviðasultu, kæfu og fl.

Fleiri fréttir