Nærri 60 námskeið í boði
Námsvísir Farskólans-Miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra fyrir yfirstandandi vorönn er nú kominn. Aldrei hefur verið meira úrval námskeiða, en á önninni eru nærri 60 námskeið í boði, að sögn Halldórs Gunnlaugssonar verkefnastjóra hjá Farskólanum.
Halldór segir margar nýjungar í boði og að í námsvísinum sé tekin upp sú nýbreytni að leggja áherslu á lýsingar á nýjum námskeiðum en hefðbundnari námskeið, sem reglulega hafa verið í boði séu einungis kynnt þar og vísað til heimasíðunnar með nánari upplýsingar um þau.
Meðal nýjunga nefnir Halldór námskeið um lestur ársreikninga sveitarfélaga sem sé ætlað frambjóðendum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Einnig sé boðið upp á námskeið tölvuleikjaforritun í samstarfi við SKEMA sem verður í boði víða um Norðurlandi vestra. Hefur það notið mikilla vinsæla víða um land.
Þá sé einnig ánægjulegt að geta boðið upp á Dale Carnegie námskeið á sama verði heima í héraði og á höfuðborgarsvæðinu. Þessi námskeið eru þekkt víða um heim og miða m.a. að því að öðlast sjálfstraust og hugsun sigurvegarans, eflast við hverja raun og vinna markvisst að því að láta drauma sína rætast.
Loks má nefna að hinn nýi námsvísir inniheldur ýmsar áhugaverðar greinar. Má þar sérstaklega nefnda viðtal við Harald Ingólfsson, fyrrum nemanda við Farskólann, sem á síðasta ári hlaut viðurkenningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem fyrirmynd í námi fullorðinna. Segir hann frá erfiðri skólagöngu og hvernig hann komst að því 30 árum síðar að hann gæti vel lært.
Námsvísinn er að finna á þessari slóð.