Næsta mót Neista ístölt á Svínavatni

Næsta mót í Mótaröð Neista er ístölt og verður það haldið sunnudaginn 17. mars kl.14.00 á Svínavatni neðan Stekkjardals. Keppt verður í flokki unglinga (16 ára og yngri), áhugamanna og í opnum flokki. Einnig verður bæjarkeppni, með firmakeppnisfyrirkomulagi þ.e. riðnar 4 ferðir með frjálsri aðferð.  

Á heimasíðu Neista kemur fram að skráningargjald sé kr. 1.000 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 500 fyrir hverja skráningu. Skráning sendist á email hundar@internet.is  fyrir miðnætti í kvöld, föstudagskvöldið 15. mars. Fram þarf að koma knapi og hestur, og í hvaða flokki er keppt. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag keppninnar má finna á heimasíðu hestamannafélagsins.

Skráningargjöld má greiða inn á reikning Neista 0307-26-055624  kt. 480269-7139 áður en mót hefst en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).

Fleiri fréttir