Námskeið fyrir harðbotna slöngubáta

Fyrir skömmu sóttu  sex ungir og sprækir strákar úr björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd námskeið fyrir harðbotna slöngubáta og höfðu bæði gagn og gaman af. Á heimasíðu sveitarinnar segir að námskeiðið hófst á fyrirlestrum en svo tóku við verklegar æfingar af ýmsum toga.

Hver og einn fékk að spreyta sig á að stjórna bátnum og gera ýmsar kúnstir t.d. bakka, leggja að, leggja að bát á ferð og fara á milli báta ásamt ýmsu fleiru.  Námskeiðið tókst vel og bæði leiðbeinandi og nemendur ánægðir með afrakstur helgarinnar.

Myndir má finna í myndaalbúmi sveitarinnar HÉR

Fleiri fréttir