Námskeið í meðhöndlun matvæla
Farskólinn hyggst bjóða upp á Matarsmiðju, námskeið í meðhöndlun matvæla með áherslu á kjötafurðir og vinnslu beint frá býli. Nemandi sem lýkur matarsmiðju hefur öðlast grunnfærni, leikni og öryggi í vinnubrögðum til að hann geti unnið að vöruþróun úr eigin afurðum í samræmi við lög og reglur.
Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrarformi og verklegri vinnu en auk þessa þurfa þátttakendur að halda verkdagbók á meðan á námskeiði stendur. Miðað er við bæði fagbóklega og verklega kennslu í 80 klukkustunda heildarnámstíma námsins. Námskeiðið kostar 30.000 krónur og fer kennsla fram í Farskólanum við Faxatorg á Sauðárkróki, námsverum og í kennslueldhúsi. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Farskólann.