Námskeið í saum á þjóðbúningum
„Viltu sauma þjóðbúning eða laga eldri búning?“ er spurt í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi býður upp á námskeið við að sauma upphlut, peysuföt eða telpnabúning. Einnig aðstoð við að laga eldri búninga. Leiðbeinandi verður Helga Sigurbjörnsdóttir frá Sauðárkróki.
Námskeiðið mun hefjast um mánaðarmótin janúar/febrúar ef næg þátttaka fæst og kennt í tíu skipti, 4 klst. í senn.
Þátttaka tilkynnist fyrir 14. janúar, nánari upplýsingar veitir Elín í síma 452 4287 / 862 6147