Námskeið til undirbúnings fyrir sveinspróf í húsasmíði

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki fyrirhugar að halda námskeið í vor til undirbúnings fyrir sveinspróf í húsasmíði fyrir þá sem hug hafa á því að styrkja sig í þeirri iðn. Námskeiðið fer fram dagana 6. - 8. maí, ef næg þátttaka fæst.

Fyrir þá sem koma langt að útvegar skólinn gistingu í svefnpokaplássi ef með þarf í húsnæði skólans. Kostnaður er kr. 30.000 á nemanda, skráningu lýkur föstudaginn 29. apríl og fer fram í síma 455-8000.  Nánari upplýsingar veitir Atli Már Óskarsson í síma 860-2083.

Fleiri fréttir