Neðri hæð Fellsborgar breytt
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skagastrandar var farið yfir fyrirhugaðar breytingar á neðri hæð félagsheimilisins Fellsborgar en þar fer fram ýmis félags- og menningarleg starfsemi staðarins. Auknum kostnaði vegna breytinganna var vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
-Um er að ræða breytingar sem eru í því fólgnar að sameina herbergi á neðri hæð félagsheimilisins í þeim tilgangi að ná betri nýtingu út úr húsnæðinu fyrir annarsvegar bókasafnið og hinsvegar félagsstarf eldri borgara og starfssemi kvenfélags og Lions. Bókasafnið fær stærra rými til afnota og félagsstarfið nær betri nýtingu með því að rýmið sem því er ætlað verður í einum sal en er í nokkrum herbergjum í dag, segir Magnús Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd.