Nei eða já?

Samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem MMR gerði fyrir þjóðmálafélagið Andríki dagana 4. – 7. apríl ætla ríflega 57% landsmanna ætla að hafna Icesave og yfir 90% ætla að mæta á kjörstað. Spurt var: Ef kosið yrði um nýjustu Icesave lögin í dag, hvort myndir þú kjósa með eða á móti? Niðurstöður eru þær að 57,3% vill hafna lögunum en 42,7% samþykkja og er þetta mesta forskot sem NEI hefur mælst með í könnunum til þessa.

MMR spurði síðan tveggja spurninga: Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú takir þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave lögin sem fram fer laugardaginn 9. apríl næstkomandi? Og: Hversu viss ertu um að það að kjósa sé rétt ákvörðun?

Í stuttu máli sagt ætla nær allir (94,2%) að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og nær allir segjast standa fast á sínu. NEI-menn segjast í 90,6% tilvika vera nokkuð eða algerlega vissir um að ákvörðun þeirra sé rétt en 84,8% JÁ-manna. Mun hærra hlutfall NEI-manna en JÁ-manna segist þó algerlega viss um að taka rétta ákvörðun.

Könnuna er hægt að skoða HÉR

Fleiri fréttir