Neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu
Í ársreikningi fyrir sveitarsjóð og stofnanir Sveitarfélagsins Skagastrandar kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðunnar var neikvæð um 134,7 m.kr. en árið 2011 var hún jákvæð um 17,6 m.kr. Tapið er til komið vegna framlags til hitaveituframkvæmda sem gjaldfært er í ársreikningnum. Hefði það ekki komið til væri rekstrarniðurstaðan jákvæð um 45,3 m.kr.
Í fundargerð sveitarstjórnarfundar Skagastrandar kemur fram að í árslok 2011 gerði sveitarstjórn samning við RARIK um lagningu hitaveitu til Skagastrandar. Í samningnum er gert ráð fyrir að sveitarfélagið greiði 180 m.kr. óafturkræft framlag til hitaveituframkvæmdanna. Til greiðslu á árinu 2012 voru 150 m.kr. sem tilgreindar voru í sjóðstreymi fjárhagsáætlunar ársins og 30 m.kr. sem verða til greiðslu árið 2014. Greiðslan og skuldbindingin vegna samningsins eru gjaldfærðar í ársreikningi 2012. Rekstrarniðurstaða án þessa framlags til hitaveitu hefði verið jákvæð um 45,3 m.kr.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 497,4 m.kr. en voru 475,5 m.kr. árið 2011 og hafa því hækkað um 4,6% á milli ára. Eigið fé samstæðu í árslok 2012 nam 1.133 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall var 71,4% í lok árs 2012 en var 74,9% árið 2011. Engin ný lán voru tekin á árinu 2012.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar ræddi ársreikninginn á fundi í vikunni og samþykkti hann og áritaði að lokinni umræðu.