Neisti hlaut hvatningarverðlaun USAH

97. ársþing Ungmennasambands Austur Húnvetninga fór fram á Blönduósi fyrir rúmri viku. Góð mæting var á þingið en rúmlega 30 fulltrúar mættu frá aðildarfélögum sambandsins og var þingið mjög starfssamt. Nokkrar tillögur komu fram á þinginu um ýmis málefni sambandsins.

Kjósa þurfti formann og varaformann til tveggja ára og voru þær Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður og Hafdís Vilhjálmsdóttir, varaformaður endurkjörnar í stjórn auk þess sem Rannveig Lena Gísladóttir var kjörin gjaldkeri til eins árs. Aðrir í stjórn eru þær Guðrún Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi og Sigrún Líndal, ritari.

Hvatningarverðlaun USAH hlaut Hestamannafélagið Neisti fyrir feyki gott starf, sérstaklega starfsemi þeirra með börnum og unglingum í héraðinu. Greint er frá þessu á vef UMFÍ.

Fleiri fréttir