Nemandi í Höfðaskóla sigurvegari í smásagnasamkeppni
Undanfarin 7 ár hefur Félag enskukennara á Íslandi staðið fyrir smásagnasamkeppni sem haldin er í tengslum við Evrópska tungumáladaginn.
Nemendur í 4.-10. bekk í grunnskólum, sem og nemendur framhaldsskóla geta tekið þátt í þessari keppni. Verðlaunasætin eru ellefu, fyrsta til þriðja sæti í þremur riðlum, 7.-8. bekkur, 9.-10. bekkur og framhaldsskóli, og fyrsta og annað sæti í riðlinum 4.-6. bekkur. Nemendur áttu að skrifa sögur sínar út frá fyrirfram gefnu þema sem að þessu sinni var Roots (rætur).
Meðal verðlaunahafa að þessu sinni var Laufey Lind Ingibergsdóttir, nemandi í 10. bekk í Höfðaskóla á Skagaströnd, en hún bar sigur úr býtum í riðli 9.-10. bekkja með sögu sinni The tree. Þetta var í fyrsta skipti sem Höfðaskóli tekur þátt í samkeppninni.
Verðlaunaafhendingin fór fram að Bessastöðum föstudaginn 3. mars sl. þar sem forsetafrú Íslands, Eliza Reid, setti athöfnina. Eliza Reid og stjórn FEKÍ afhentu svo sigurvegurum verðlaunin.