Nemendum líður vel heima hjá sér
Hátt í fjórðungur nemanda í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla á Íslandi segist engan tíma nota í lestur annarra bóka en skólabóka. Strákar eru fleiri en stelpur í þessum hópi. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn „Ungt fólk 2011 í 5., 6., og 7. bekk grunnskóla“ . Rannsóknin er byggð á spurningum um líðan, menntun, menningu, tómstundir og íþróttaiðkun íslenskra ungmenna.
Rannsóknin var unnin fyrir mennta-og menningarmálaráðuneytið og lögð fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins í febrúar 2011. Rannsóknir og greining vann rannsóknina.
- · Meirihluti barna í 5., 6. og 7. bekk hefur sterka sjálfsmynd og líður almennt vel.
- · Mikill meirihluti nemenda í 5., 6. og 7. bekk fær hjálp frá pabba sínum, mömmu eða systkinum við heimanámið. Stelpur eru fjölmennari í þeim hópi.
- · Miklum meirihluta nemenda líður vel heima hjá sér og ver drjúgum tíma með foreldrum sínum.
- · Hlutfall þeirra barna sem hreyfa sig mikið hefur hækkað undanfarin ár, en hlutfall þeirra sem hreyfa sig lítið sem ekkert hefur líka hækkað.
- · Um og yfir 70 prósent nemenda segjast eiga marga vini. Nær enginn munur er á kynjum í þessu tilliti. 7-10 af hundraði nemenda í 5.–7. bekk segjast fáa eða enga vini eiga.
- · Mikill meirihluti nemenda segist aldrei hafa tekið þátt í stríðni/einelti í skóla. Stelpur eru fjölmennari í þeim hópi.
- · Tæplega 11 af hundraði nemenda finnst námið of erfitt. Næstum jafnmörgum finnst námið of létt.
- · Hátt í fjórðungur nemanda segist engan tíma nota í lestur annarra bóka en skólabóka. Strákar eru fleiri en stelpur í þessum hópi.
- · Um 92 af hverjum hundrað nemendum eiga gsm síma.
- · Um og yfir 20% nemenda í 5. – 7. bekk segjast eiga erfitt með að sofna á kvöldin.
- · Á um 17% heimila er talað annað tungumál ásamt íslensku.
- · Um 20% nemenda búa ekki með föður sínum en um 5% ekki með móður.
- · Hátt í 10% nemenda finnst hann ekki öruggur á skólalóðinni.
/Skagafjörður.is