Nemendur kynnast FabLabinu
Á dögunum fengu nemendur í ÍSL403 og DAN1026 við FNV að kynnast nýja FabLabinu við skólann. Valur Valsson kennari í vinnustofunni tók á móti hópunum sem voru 4 til samans, 2 í hvoru fagi. Hugmyndin er að leiða saman „hug og hönd“, hvort heldur sem um er að ræða íslenskar bókmenntir frá 1550-1900 eða danska tungu og menningu. Fablabið býður upp á ótrúlega möguleika en eins og kennarinn sagði þá er ekkert sem stoppar mann þegar þangað er inn komið nema hugarflugið. Sumir nemendur hafa lokið við að vinna afurð sína á meðan hugmyndir eru að berast frá öðrum og ekki vantar nemendur hugmyndaflugið frekar en fyrri daginn. Fyrirhuguð er síðan sýning og kynning á verkefnum nemenda en ekki erum við búin að ákveða endanlega hvernig því verður háttað en hugmyndir þar að lútandi hafa verið viðraðar. Hér koma nokkrar myndir af nemendum frá kynningu og smiðju í síðustu viku.