Nemendur sigruðu starfsfólk á golfmóti FNV

Golfmót FNV var haldið í annað sinn miðvikudaginn 18. september. Nemendur kepptu á móti starfsmönnum í 9 holu keppni. Það er skemmst frá því að segja að keppnin var æsispennandi en nemendur sigruðu lið starfsfólks að lokum. Lið nemenda fékk samtals 40 punkta en lið starfsfólks 39 punkta.

Í sigurliði nemenda voru Aldís Ósk Unnarsdóttir, Atli Freyr Rafnsson, Daníel Logi Þorsteinsson og Hlynur Freyr Einarsson. Starfsmenn sem tóku þátt voru Árni Stefánsson, Ásgeir Aðalsteinsson, Ingileif Oddsdóttir, Kristján Bjarni Halldórsson og Nína Þóra Rafnsdóttir. Bestum árangri keppenda náði Atli Freyr sem spilaði hringinn á 18. punktum. Nemendur fengu glæsilegan farandbikar sem þeir geyma í ár, fram að næstu keppni.

Fleiri fréttir