NES auglýsir eftir íslenskum listamönnum
Nes listamiðstöð á Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum listamönnum. Í boði er 50 þús. kr. dvalarstyrkur fyrir hvern listamann á vorönn 2013; mars, apríl og maí. Gist er í íbúðum þar sem hver listamaður hefur sitt herbergi en deilir sameiginlegu rými með 2-3 öðrum listamönnum, flestum erlendum.
Í Nes listamiðstöð eru allt að tólf listamenn í hverjum mánuði og það býður upp á einstaka möguleika á tengslamyndun, tækifærum til samstarfs, umræðum og listrænni þróun. Á meðan styrkhafar dvelja í listamiðstöðinni þurfa þeir að koma með tillögu um samfélagsverkefni á staðnum og vinna að því.
Allar nánari upplýsingar má sjá hér. Einnig er hægt að hafa samband við Melody á netfanginu nes@neslist.is. Umsóknarfresti lýkur 15. janúar 2013.
Menningarráð Norðurlands vestra styrkir Nes listamiðstöð til að bjóða íslenskum listamönnum dvalarstyrk gegn samfélagslegu framlagi.