Nes listamiðstöð þarfnast verkefnisstjóra
Nes listamiðstöð ehf. á Skagaströnd hefur auglýst starf verkefnisstjóra fyrir listamiðstöðina laust til umsóknar. Við listamiðstöðina hafa að jafnaði dvalið um 100 listamenn árlega, hvaðanæva úr heiminum.
Fram kemur á vefsíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar að um sé að ræða 50% stöðu þar sem viðkomandi kemur til með að annast daglegan rekstur listamiðstöðvarinnar, s.s. markaðs- og kynningarstarf, samskipti við listamenn og umsýslu með vinnustofum, gistirými, viðburðum og öðrum umsvifum. Verkefnisstjóri starfar jafnframt með stjórn félagsins að stefnumörkun til áframhaldandi uppbyggingar listamiðstöðvarinnar.
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
- · Háskólamenntun á sviði lista
- og / eða menningar æskileg eða menntun sem nýtist til starfsins.
- · Góð enskukunnátta
- · Reynsla af verkefnum á sviði lista- og menningar.
- · Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- · Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.
- · Frumkvæði, áhugi og drifkraftur.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október nk. og skulu umsóknirnar, ásamt ferilskrá, berast á heimilisfangið: Nes listamiðstöð ehf., Túnbraut 1 – 3, 545 Skagaströnd eða á netfangið: halldor@biopol.is, þar er jafnframt hægt að nálgast nánari upplýsingar.