Nethraði stóreykst hjá íbúum á Skagastrandar

Fram kemur í tilkynningu frá Símanum að með uppfærslu símstöðvar á Skagaströnd er eldri símstöð skipt út fyrir nýrri, svokallaðri ISAM stöð. Flutningsgeta mun þá fara í allt að 16Mb/s en eldri stöð réði við 8 Mb/s. Þetta þýðir að íbúar Skagastrandar eiga kost á mun meiri nethraða og gagnaflutningi og öðlast einnig aðgang að tugum sjónvarpsstöðva.

Viðskiptavinir Símans á Skagaströnd munu geta nýtt sér VOD-þjónustu Skjásins, stafræna myndbandaleigu, sem býður notendum upp á að leigja kvikmyndir og þætti. Auk þess er VOD þjónustan með fjölbreytt ókeypis efni á borð við barnaefni, fréttir o.fl. Efnið er aðgengilegt hvenær sem er sólarhringsins.

Áskrifendum að Sjónvarpi Símans gefst einnig kostur á móttöku og afspilun sjónvarpsefnis í háskerpugæðum (HDTV). Háskerpa nýtir dreifileið Sjónvarps Símans um ADSL til að senda út sjónvarpsmerki í mun hærri upplausn en áður hefur boðist í stafrænu sjónvarpi.

„Við hér á Skagaströnd fögnum þessu framfaraskrefi sem ekki bara snertir einstaklinga heldur ekki síður atvinnulífið sem býr nú við betri skilyrði en áður. Samkeppnisstaða byggðarinnar hefur sannarlega styrkst,“ segir Adolf H. Berndsen oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar í tilkynningunni frá Símanum.

Fleiri fréttir